Færsluflokkur: Dægurmál

Banaslysum fækkar eða jafnvel útrýmt ef umferðarumhverfið verður bætt.

Áður en við getum útrýmt banaslysum í umferðinni þarf að bæta umferðarmannvirki mikið.  Slysin verða þegar varnir í umferðinni vantar.  Berum saman Keflavíkurveg þar sem ekki hefur orðið banaslys síðan hann var tvöfaldaður og Suðurlandsveg þar sem banaslys teljast í tugum síðustu árin vegna þess betrumbætur á honum hafa verið hunsaðar af yfirvöldum.
mbl.is Banaslysum í umferðinni verði útrýmt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Velferðarsvið - þjónustumiðstöð

Það var frekar klaufalegt þegar talskona velferðarsviðs sagði í sjónvarpi að ekki hefði verið brugðist strax við ábendingu nágrannakonunnar vegna þess að hún hefði átt að snúa sér beint og strax til þjónustumiðstöðvarinnar í viðkomandi hverfi.  Ég hef talið að velferðarsviðið ræki þjónustumiðstöðvarnar og að auðvelt ætti að vera að koma boðum þar á milli.

Foreldrar greindra barna

Sumir foreldrar eru einfaldlega mjög uppteknir af því hvað barnið þeirra sé gáfað og líka uppteknir af því að aðrir viti hvað það er gáfað, því að auðvitað sækir barnið gáfurnar til foreldranna, nema hvað.
mbl.is Foreldrar greindra barna undir meira álagi en aðrir foreldrar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfir strikið

 

Auglýsingin sem birtist í Fréttablaðinu í morgun frá Samfylkingunni fór langt yfir strikið.  Þar stendur:  ,,Skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar kemur best í ljós þegar börnin opna munninn.  Tannheilsa íslenskra barna er nú orðin sú versta á Norðurlöndunum enda hafa 8.500 börn ekki farið til tannlæknis í þrjú ár.  Fimmta hvert barn á grunnskólaaldri fær óviðunandi tannlæknisþjónustu vegna fátæktar foreldra samkvæmt athugun landlæknis Útgjöld heimilanna vegna tannlæknakostnaðar hafa aukist um 40% í tíð núverandi ríkisstjórnar.  Kjósum tannpínuna burt.  Samfylkingin vill ókeypis tannvernd fyrir öll born".  Og svo er mynd af  sárþjáðu tannpínubarni.    Ég hef ýmislegt við þessa auglýsingu að athuga, t.d. við vörpum ekki ábyrgðinni af umönnun   barna bara si sona yfir á ríkisstjórn.  Foreldrar bera ábyrgð á tannheilsu barna sinna með skynsamlegu mataræði og að tennur séu hreinsaðar vel og vandlega á hverjum degi.  Reglubundið eftirlit hjá tannlækni t.d. einu sinni til tvisvar á ári,  kostar ekki þá upphæð að folk sem á eitt til tvö born sem algengast er geti ekki séð af þeim fáu þúsundköllum sem heimsókn til tannlæknis vegna eftirlits kostar.  Mínir strákar eru komnir til fullorðinsára með allar tennur heilar og óviðgerðar og það er ekki ríkisstjórninni að þakka.  Ég burstaði tennur þeirra sjálf til tíu ára aldurs og fylgdist með tannburstuninni eftir það þangað til ég var viss um að þeir gerðu þetta nógu vel.  Það kostaði ekkert nema einn sentimetra af tannkremi í hvert skipti.  Áróður undanfarin ár hefur beinst að því að halda tönnum barna heilum a.m.k. til tólf ára aldurs, ekki að láta tennurnar skemmast og gera svo við.  Viðgerðir á tönnum barna á að heyra til undantekninga og þar bera foreldrar auðvitað ábyrgðina, ekki ríkisstjórnin.  Hvaða dómadags endemis kjaftæði er þessi auglýsing.  Ég spyr í einfeldni minni:  Vilja foreldrar setja ábyrgðina á uppeldi og umönnun barna sinna í hendurnar á einhverju opinberu bákni,  trúir folk  að með því að kjósa tiltekinn stjórnmálaflokk sé það stikkfrí að hugsa um börnin sín og tannheilsu þeirra.  Meðan skólatannlæknar störfuðu var fullt af fólki sem kaus að fara með börnin sín til annarra tannlækna, til tannlækna sem ráku sínar einkatannlæknastofur þrátt fyrir að kostnaður væri töluvert meiri.  Hvetjum foreldra til að taka ábyrgð, ekki að finna sökudólg.


Barinn og rændur

Hún er ömurleg fréttin á forsíðu Morgunblaðsins í dag um mann sem var barinn og rændur í hjólastól á Lækjartorgi á sunnudaginn.  Í fréttinni segir ennfremur að árásarmaðurinn hafi talað útlenskt mál og þegar hann hafi mætt takmörkuðum skilningi hjá manninum í hjólastólnum hafi hann tryllst og ráðist á fatlaða manninn.  Ég ætla alls ekki að hafa svo alvarlegt mál í flimtingum en þetta minnir mig samt á fréttaflutning frá Akureyri á árum áður (já og kannski enn) þegar misindismenn fóru um  bæinn og gerðu eitthvað af sér var jafnan tekið fram í fréttum af atburðunum að um utanbæjarmenn hefði verið að ræða.



Kennarar standa saman

Það var baráttuhugur í mörg hundruð kennurum sem söfnuðust saman á Lækjartorgi og gengu síðan fylktu liði að Ráðhúsinu.  Því miður var borgarstjórinn ekki við en aðstoðarmaður hans tók við mótmælum kennaranna.  Ég hélt að nú væri lag fyrir Reykjavíkurborg að vinna traust kennara.  Nýr meirihluti í borginni og einnig nýr sviðsstjóri menntasviðs.  Við eigum öll að vera í sama liði og vinna að heill og hamingju reykvískra skólabarna.   En við viljum líka fá sanngjörn laun fyrir.

Breiðavík

Það er skammt stórra högga á milli í fréttum af illri meðferð á fólki sem af einhverjum ástæðum hafa þurft á aðstoð samfélagsins að halda.  Byrgið er enn til umræðu og því máli langt frá því lokið og nú eru mál heimilisins að Breiðavík í brennidepli.  Vonandi fá þeir sem þarna var brotið á uppreist æru, bætur ef það er það sem þarf, sálfræðihjálp og stuðning og viðurkenningu opinberra aðila að rangt hafi verið staðið að málum þarna.

Nýtt blogg

Nýtt blogg. 


Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband